Fotbolti.net
08.03.07 - 17:31
Magnús Már Einarsson

Bjarni Þórður á láni til Víkings (Staðfest)

Bjarni Þórður Halldórsson.

Bjarni Þórður Halldórsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Víkingur samdi í dag við Fylki um að fá markvörðinn Bjarna Þórð Halldórsson að láni frá mars þangað til í september en þetta kemur fram á stuðningsmannasíðu Víking, vikingur.net.
Bjarni Þórður má ekki spila með Víkingi gegn Fylki samkvæmt lánssamningnum en fái hann leikheimild í tíma gæti hann leikið sinn fyrsta leik fyrir fyrrnefnda liðið á morgun, gegn FH í Lengjubikarnum.

Ingvar Þór Kale sem varði mark Víkings síðastliðið sumar verður væntanlega lítið sem ekkert með í sumar eftir að hafa farið í aðgerð vegn úlniðsbrots fyrr á árinu.

Magnús Þór Magnússon hefur varið mark Víkings í Reykjavíkurmótinu og byrjun Lengjubikarsins en hann mun berjast við Bjarna Þórð um markvarðarstöðuna.

Bjarni Þórður sem er 24 ára gamall spilaði einn leik á síðasta tímabili en hann hafði lent í erfiðum meiðslum og missti því að byrjun tímabilsins. Fylkir fékk til sín Fjalar Þorgeirsson fyrir síðasta tímabil og hann mun verja mark liðsins áfram í sumar.

Bjarni Þórður sem er uppalinn hjá Fylki lék alla leiki liðsins árið 2004 og 2005 en hann á að baki sjö U-21 árs landsleiki fyrir Íslands hönd.

Heimild: vikingur.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.