Fotbolti.net
08.03.07 - 17:45
Magnús Már Einarsson

Davíð Þór í Fjölni (Staðfest)

Davíð Þór í Fjölni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Framherjinn Davíð Þór Rúnarsson úr Víkingi Reykjavík er á leið í Fjölni og mun hann fá félagaskipti á næstu dögum en þetta staðfesti hann við Fótbolti.net í dag.
Við greindum frá því á dögunum að Davíð Þór væri líklega á förum frá Víkingi en hann varð samningslaus um síðustu áramót.

Davíð er að ganga til liðs við sína gömlu félaga því hann lék með Fjölni árin 2004 og 2003 og skoraði 21 mark í 40 leikjum fyrir félagið.

Davíð Þór sem er 28 ára gamall skoraði fjögur mörk í átján leikjum í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar en árið áður gerði hann sex mörk í átján leikjum í fyrstu deildinni fyrir Víking.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.