Benedikt Þór Viðarsson er búinn að skipta yfir til Ægis og mun leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.
Benedikt er 19 ára varnarmaður sem hefur leikið fyrir yngri flokka Gróttu, KR og Vals, auk þess að eiga deildarleiki að baki fyrir KH í 4. deildinni.
Benni hefur verið að æfa með Ægi í vetur og er búinn að spila leiki með liðinu í Lengjubikarnum.
„Benni er orkumikill og metnaðarfullur leikmaður með mikinn vilja til að bæta sig og hann á sannarlega framtíðina fyrir sér. Velkominn í Ægi," segir meðal annars í tilkynningu frá Þorlákshöfn.
Ægir vann 2. deild í fyrra til að tryggja sér sæti í Lengjudeildinni ásamt Gróttu, en Benni fékk ekki að spreyta sig með Seltirningum á Íslandsmótinu.
Athugasemdir



