08.04.08 - 16:01
Hörður Snævar Jónsson
Stefán Björn Hauksson í KFS úr ÍBV (Staðfest)

Stefán með fyrirgjöf gegn Þrótti á síðustu leiktíð.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Stefán Björn Hauksson er gengin aftur í raðir KFS frá ÍBV en hann lék með liðinu síðasta sumar.
Bæði þess lið eru úr Vestmannaeyjum en Stefán gekk í raðir ÍBV fyrir síðustu leiktíð frá KFS þar sem hann hafði leikið í þrjú tímabil en þar áður lék hann með ÍBV.
Hann spilaði áttján leiki með ÍBV í 1. deildinni síðasta sumar og skoraði í þeim tvö mörk.
Þá spilaði Stefán þrjá leiki í VISA-bikarnum og þar skoraði hann fjögur mörk en öll mörkin komu í 10-0 sigri ÍBV á Reyni Sandgerði.