Fotbolti.net
08.04.10 - 15:06
Magnús Már Einarsson

Javier Hernandez til Manchester United (Staðfest)

Javier Hernandez til Manchester United (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur gengið frá kaupum á Javier Hernandez framherja Chivas de Guadalajara en hann mun koma til félagsins í júlí.
Þessi 21 árs gamli Mexíkói á eftir að fá atvinnuleyfi á Englandi áður en kaupin ganga í gegn.

Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en hluti af samningnum er að Manchester United mun mæta Chivas de Guadalajara í æfingaleik í Mexíkó í júlí næstkomandi.

,,Ég er ánægður með að hafa náð að semja við svona ungan og spennandi framherja,\" sagði Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United.

,,Hann hefur staðið sig vel bæði með félagsliði sínu og landsliðinu. Hann er frábær viðbót við hópinn okkar og það er tilhlökkun hjá okkur yfir því að fá fyrsta mexíkóska leikmanninn hingað í sumar.\"

Hér að neðan má sjá myndband með tilþrifum frá Hernandez.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.