08.05.08 - 18:25
Gunnar Gunnarsson
Josep Guardiola nýr þjálfari Barcelona (Staðfest)

Hinn nýi þjálfari Barcelona, Josep Guardiola

Mynd: Getty Images

Frank Rijkaard mun yfirgefa herbúðir Barcelona í lok þessa tímabils og fyrrum fyrirliði Börsunga, Josep Guardiola mun taka við sem þjálfari liðsins. Þetta tilkynnti forseti Katalóníuliðsins, Joan Laporta nú rétt í þessu á blaðamannafundi.
Fyrrverandi landsliðsmaður hollenska landsliðsins Frank Rijkaard tók við liði Barcelona árið 2003 og náði að gera liðið tvívegis að spænskum meisturum ásamt því að leiða liðið til sigurs í Meistaradeild Evrópu árið 2006.
Hvað sem því líður, þá hefur Börsungum ekki tekist að landa titli tvö tímabil í röð og það er einfaldlega ekki viðunnandi árangur þar á bæ, og dropinn sem fyllti mælinn var niðurlægjandi tap liðsins gegn Spánarmeisturum, Real Madrid í gærkveldi.
Ósigur liðsins gegn erkifjendunum í Madrid og sigur Villarreal á Recreativo Huelva þýðir að Börsungar geta ekki endað hærra en í þriðja sæti spænsku deildarinnar og gerir það að verkum að liðið þarf að leika í undankeppni Meistaradeildarinnar til að komast í riðlakeppnina.
,,Við höfum ákveðið að gera breytingar því úrslitin hafa ekki verið okkur í hag uppá síðkastið. Staðan var mjög döpur eftir síðustu leiktíð."
,,Okkur hefur ekki tekist að leiðrétta þau mistök sem við höfum verið að gera og þess vegna höfum við ákveðið að segja upp samningi okkar við Frank í lok þessa tímabils." sagði Laporta að lokum.
Þess má geta að samningur Frank Rijkaard átti að renna út í lok næsta tímabils árið 2009.
Hinn 37 ára gamli Guardiola spilaði í 17 ár fyrir Barcelona á árunum 1984 til 2001 áður en hann sneri sér að þjálfun varaliðs félagsins árið 2007.
Guardiola sem mun formlega taka við þjálfun liðsins 30. júní er goðsögn í sögu Katalóníuliðsins en hann varð Evrópumeistari með liðinu þegar það vann sinn fyrsta Evróputitil en jafnframt vann Guardiola sex sinnum spænsku deildina með Börsungum meðan hann var á Nou Camp.

Heimild: Soccernet