Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 08. maí 2021 21:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
England: Liverpool vann sigur gegn Southampton
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Liverpool 2 - 0 Southampton
1-0 Sadio Mane ('31 )
2-0 Thiago Alcantara ('90 )

Liverpool vann frekar nauman sigur gegn sprækum Dýrlingum í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Það var Sadio Mane sem skoraði fyrra mark leiksins á 31. mínútu eftir sendingu frá Mo Salah. Þetta var fyrsta stoðsending Salah á Mane í vetur. Mane skoraði reyndar annað mark á 81. mínútu en það var dæmt af vegna rangstöðu. Það var svo Thiago Alcantara sem skoraði annað mark Liverpool undir lok leiks og innsiglaði sigurinn. Markið kom eftir undirbúning frá Roberto Firmino, fyrsta markið hjá Thiago fyrir Liverpool í deildinni.

Liverpool byrjaði leikinn betur og fékk bestu færin sín í fyrri hálfleik. Nathan Redmond og Ibrahima Diallo fengu fína sénsa fyrir gestina en tókst ekki að skora.

Sigurinn er mjög svo mikilvægur fyrir Liverpool og færir liðinu sex stigum frá Meistaradeildarsæti. Liverpool á auk þess leik til góða gegn Manchester United næsta fimmtudag.

Southampton er í 16. sæti, tíu stigum fyrir ofan fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner