Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
   fös 08. maí 2026 23:22
Elvar Geir Magnússon
Davíð Smári: Einhver tappi losnaði
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Njarðvíkingar unnu 2-0 heimasigur gegn Fylki í stórleik umferðarinnar í Lengjudeildinni. Þetta var fyrsti sigur Njarðvíkinga sem eru með fjögur stig að loknum þremur umferðum.

Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur, segist mjög ánægður með frammistöðu síns liðs heilt yfir.

Lestu um leikinn: Njarðvík 2 -  0 Fylkir

„Einhver tappi losnaði í Njarðvíkurliðinu þegar við náðum að skora fyrsta markið. Þá fannst mér losna um öll beisli og frammistaðan frábær. Það var ofboðsleg orka í liðinu," segir Davíð.

Fylkir missti mann af velli með rautt spjald og ellefu gegn tíu komu bæði mörk Njarðvíkur í leiknum.

Í viðtalinu fer Davíð meðal annars yfir byrjun Njarðvíkur á mótinu.

„Það eru bara þrír leikir búnir af mótinu og við verðum að ná að vaxa inn í mótið og verða ennþá sterkari."
Slapp
banner
banner
banner