08.06.06 - 21:39
Guðmundur Dagur Ólafsson
Bowyer til West Ham (Staðfest)

Náði sér aldrei á strik hjá Newcastle

Mynd: Getty Images

Náði sér aldrei á strik hjá Newcastle

Mynd: Getty Images
Lee Bowyer gekk í dag til liðs við West Ham frá Newcastle United eftir árangursríkar samningaviðræður. Þetta er í annað skipti sem Bowyer fer til West Ham en hann spilaði með þeim stuttlega árið 2003 eftir að hann fór frá Leeds United
Hann fór frá West Ham eftir að þeir féllu en hjá Newcastle hefur aldrei náð að sýna formið sem hann var í hjá Leeds og kom honum í enska landsliðið.
Hann er hæstánægður með endurkomuna til félagsins sem hann hélt með í æsku og segist vera viss um að núna nái hann sér loks á strik.
"Ég er viss um að mér eigi eftir að ganga vel hjá West Ham. Mér fannst mjög gaman hjá Newcastle en þetta er klúbburinn minn," sagði Bowyer við opinbera heimsíðu West Ham í dag.
Hann segist jafnframt ekki vera sáttur við hvernig hann spilaði síðast þegar hann var á Upton Park: "Ég spilaði ekki vel seinast þegar ég var hér. Ég var með slæm ökklameiðsli en spilaði þrátt fyrir það sem kom engum til góða. Ég vil sýna stuðningsmönnum West Ham hvað ég get."
"Þegar ég vissi að Alan Pardew vildi fá mig til félagsins þá gat ég einfaldlega ekki neitað því. Ég fór með pabba á leiki hérna og Billy Bonds var hetjan mín. Ég vil vinna titla hér eins og hann því ég hef alltaf haft hann sem ákveðna fyrirmynd varðandi spilamennsku mína," sagði Bowyer að lokum.