Fotbolti.net
08.06.09 - 22:55
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Kaka til Real Madrid (Staðfest)

Kaka til Real Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid hefur gengið frá kaupum á Kaka en hann kemur til félagsins frá AC Milan á 56 milljónir punda og verður þar með dýrasti leikmaður heims frá upphafi.
Real Madrid greindi frá félagaskiptunum á heimasíðu sinni í kvöld en félagið átti einnig fyrra metið yfir dýrasta leikmann í heimi, það var þegar að félagið keypti Zinedine Zidane frá Juventus á 45,6 milljónir punda árið 2001.

Kaka, sem er 27 ára, gerir sex ára samning við Real Madrid en hann er fyrsti leikmaðurinn sem félagið fær eftir að Florentino Perez tók við að nýju sem forseti á dögunum.

Perez lofaði breytingum hjá Real Madrid og ekki er ólíklegt að fleiri stór nöfn eigi eftir að koma til félagsins í sumar og hafa Franck Ribery, David Silva, David Villa og Xabi Alonso verið nefndir þar til sögunnar.

Kaka fór í læknisskoðun í Recife í Brasilíu fyrr í dag en hann mun á miðvikudag leika þar með landsliði Brasilíu gegn Paragvæ í undankeppni HM.

Kaka kom til AC Milan frá São Paulo árið 2003 en hann skoraði alls 70 mörk í 193 leikjum á ferli sínum með ítalska félaginu og árið 2007 var hann valinn besti knattspyrnumaður heims.

Í janúar reyndi Manchester City að fá Kaka en án árangurs þrátt fyrir að talið sé að félagið hafi boðið 100 milljónir punda í leikmanninn.

Heimild: Reuters | BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.