Fotbolti.net
08.06.11 - 11:32
Magnús Már Einarsson

Carl Jenkinson til Arsenal (Staðfest)

Arsene Wenger stjóri Arsenal.

Arsene Wenger stjóri Arsenal.

Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur keypt finnska varnarmanninn unga Carl Jenkinson frá Charlton Athletic.
Þessi 19 ára gamli leikmaður lék sinn fyrsta leik með aðalliði Charlton í desember en hann hefur samtals leikið tíu leiki með liðinu síðan þá.

Jenkinson leikur aðallega sem hægri bakvörður en hann hefur þó einnig spilað í miðverði.

,,Ég vona að stuðningsmennirnir muni skilja að ég geti ekki hafnað svona tilboði en Charlton mun alltaf eiga stað í hjarta mínu,\" sagði Jenkinson sem er í U21 árs landsliði Finnlands.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.