Franski framherjinn Olivier Giroud verður áfram hjá Lille út næstu leiktíð þrátt fyrir að vera orðinn 39 ára gamall.
Giroud er goðsögn hjá Lille og franska landsliðinu. Hann er markahæsti leikmaður í sögu Lille og á tíma sínum með landsliðinu skoraði hann 57 mörk í 137 leikjum.
Giroud, sem verður fertugur í lok september, skoraði 11 mörk í 44 leikjum á nýliðnu tímabili.
Hann hjálpaði Lille að ná þriðja sæti frönsku deildarinnar en hann er liðsfélagi Hákons Arnars Haraldssonar þar.
Giroud hefur meðal annars leikið fyrir Arsenal, Chelsea og AC Milan á ferlinum.
????'???????????????????????????????? ???????????????????????????????? ?????? pic.twitter.com/wKetPvhBBo
— LOSC (@losclive) June 8, 2026



