Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. júní 2026 15:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Divock Origi hættur (Staðfest) - Sjáðu bestu mörkin hans
Mynd: EPA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Divock Origi hefur lagt skóna á hilluna en belgíski sóknarmaðurinn er einungis 31 árs gamall.

Hann er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Liverpool en þar skoraði hann nokkur eftirminnileg mörk. Hann skoraði t.a.m. frægt mark gegn Barcelona, í úrslitaleiknum gegn Tottenham í Meistaradeildinni og mjög svo eftirminnilegt mark gegn Everton.

Hann er uppalinn hjá Genk og Lille og hélt svo til Liverpool árið 2014 og var þar til 2022. Hjá Liverpool skoraði hann 41 mark í 175 leikjum í öllum keppnum. Hann vann úrvalseildina, enska bikarinn, deildabikarinn, Meistaradeildina, ofurbikar Evrópu og HM félagsliða sem leikmaður Liverpool.

Hann fór til AC Milan 2022 og rann samningur hans við félagið út síðasta sumar.

Hann lék 32 leiki með belgíska landsliðinu og eitt af þremur landsliðsmörkum hans kom árið 2014 gegn Íslandi í vináttulandsleik.






Slapp
banner
banner
banner