Mikið hefur verið rætt og ritað um nýjar og umdeildar reglur FIFA gegn töfum sem prófaðar voru í dýrmætum sigri Íslands gegn Úkraínu. Á blaðamannafundi íslenska landsliðsins á Laugardalsvelli í dag opinberaði fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir að dómarinn sjálfur hefði verið kominn með alveg nóg af ruglinu inni á vellinum.
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, gat ekki annað en glottað þegar talið barst að þessu en honum fannst ástandið á hliðarlínunni skoplegt á köflum.
„Þetta var bara orðið hálf fyndið á köflum, þær vissu greinilega ekki hvort þær voru að koma eða fara,“ sagði Steini
„Þetta á að koma í veg fyrir tafir en á ekki að vera þannig að þú hafi bara þessar sekúndur.“
„Ég held hreinlega að þetta hafi verið í fyrsta skiptið sem það var spilað eftir þessari reglu fyrir utan á Íslandi.“
Glódís Perla tók undir þetta með þjálfara sínum og sagði ástandið hafa verið fáránlegt á köflum.
„Þetta var bara pínu hlægilegt. Hún var að reka á eftir þeim, þær vilja skora, þannig þær voru ekki að reyna að tefja,“ sagði Glódís Perla létt í bragði
Hún ræddi við dómara leiksins eftir lokaflautið.
„Ég sagði við dómarann eftir leik að þetta væru fáránlegar reglur og hún sagði: „Ég er sammála“. Hún sagðist ekki geta fókusað á að vera dómari, heldur var hún bara að fókusa á að vera að telja.“
„Það er því ekkert bara leikmenn sem finnst þetta erfitt.“



