Heimsmeistaramótið í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó fer af stað á fimmtudag. Um er að ræða einn stærsta íþróttaviðburð sögunnar, ef ekki bara þann stærsta.
Treyjurnar eru stór hluti af hverju heimsmeistaramóti og á HM 2026 má finna fjölmargar glæsilegar hannanir frá stærstu íþróttavöruframleiðendum heims.
Treyjurnar eru stór hluti af hverju heimsmeistaramóti og á HM 2026 má finna fjölmargar glæsilegar hannanir frá stærstu íþróttavöruframleiðendum heims.
Til að fá faglegt mat á flottustu treyjunum fengum við Egil hjá Suitup til að fara yfir úrvalið og velja sínar fimm uppáhalds treyjur á mótinu sem er framundan.
Hér fyrir neðan má sjá hvaða fimm treyjur stóðu upp úr að mati Egils og hvað það var sem heillaði hann við hverja þeirra.
5. Kongó (heima) - Ein af mínum uppáhalds og algjörlega nauðsynlegt að fá Umbro á lista með stóru strákunum. Fallegt zebra mynstur sem virkar talsvert betur en maður skyldi ætla. Leikgleði og hamingja.
4. Brasilía (heima) - Lauslega byggð á 1970 heimsmeistaratreyju Brasilíu. Klassísk Kanarí gul með einföldum dökkgrænum strípum á ermunum. Fallegt hálsmál og geometrískt mynstur sem vísar í þjóðfána brasislíu. Bláar stuttbuxur, hvítir sokkar. Tímalaust.
3. Argentína (heima) - Titilvörn í Albiceleste röndum, já takk. Þetta er hvorki frumlegasta né ferskasta treyjan á mótinu en óumdeilanlega Argentína. Gradientinn í röndunum er svo söguleg vísun í heimsmeistaratitla Argentínu 1978, 1986 og 2022. Snyrtileg, falleg og óumdeilanlega Argentísk.
2. Curacao (úti) - Algjör negla fyrir treyju sjúklinga. Einstaklega smekkleg litasamsetning. Pastel gulur, bleikur túrkís og appelsínugulur er ekkert endilega blanda sem ég hefði veðjað á en maður minn, þessi steinliggur.
1. Þýskaland (úti) - Kaflaskil, síðasta Adidas treyjan áður en Nike tekur við hjá Þýskalandi 2027. Einstaklega vel lukkuð treyja, retró víbrur til að loka þessu 70 ára sambandi. Gamla Adidas logo’ið stendur sperrt og sælt og fær að njóta sín. Hinsti dansinn og þessi treyja kjarnar þá stund fullkomlega.



