Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   mán 08. júní 2026 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Eltir Marco Silva til Benfica
Mynd: EPA
Jorge Cuenca, varnarmaður Fulham, er sagður á leið til portúgalska félagsins Benfica. Record greinir frá.

uenca er 26 ára gamall örvfættur miðvörður sem var keyptur til Fulham frá Villarreal fyrir tveimur árum.

Marco Silva lagði mikla áherslu á að fá Cuenca til félagsins á sínum tíma, en Spánverjinn spilaði þó ekki stórt hlutverk undir stjórn hans hjá Fulham.

Samkvæmt portúgölskum miðlum gæti Cuenca hins vegar fylgt Silva til Benfica í Portúgal. Silva er sagður hafa náð samkomulagi um að taka við Benfica, en hann mun taka við af José Mourinho sem er orðaður við endurkomu til Real Madrid.

Í kjölfarið gæti Benfica keypt Cuenca fyrir um 15 milljónir evra. Fram kemur að þótt Silva hafi átt stóran þátt í að fá hann til Fulham á sínum tíma, hafi Benfica fylgst með leikmanninum um nokkurt skeið og því ekki þurft mikla sannfæringu til að sækja hann.
Slapp
banner
banner