Fótboltafréttamaðurinn Gianluca Di Marzio segir að Roberto Mancini taki aftur við ítalska landsliðinu og aðeins eigi eftir að ganga frá formsatriðum.
Mancini er 61 árs og stýrði Ítalíu 2018 til 2023, hann vann EM með liðinu 2021 en mistókst að koma liðinu á HM árið eftir.
Mancini er 61 árs og stýrði Ítalíu 2018 til 2023, hann vann EM með liðinu 2021 en mistókst að koma liðinu á HM árið eftir.
Gennaro Gattuso hætti sem landsliðsþjálfari í mars, eftir að hafa mistekist að koma liðinu á HM í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Ítalía tapaði gegn Bosníu og Hersegóvínu í umspili.
Talið er að Mancini muni skrifa undir samning til 2030. Hann hefur oft sagt að það hafi verið mistök þegar hann hætti sem landsliðsþjálfari Ítalíu á sínum tíma.


