Hópur kvenna hefur stigið fram og sakað David Sullivan, meðeiganda West Ham, um að hafa misnotað stöðu sína og vald til að fá þær til að stunda með sér kynlíf.
Um helgina var greint frá því að Sullivan, sem er 77 ára, hafi stigið til hliðar sem formaður West Ham vegna fjölmiðlaumfjöllunar sem væri væntanleg.
The Times og BBC hafa verið að vinna að heimildarmynd og blaðaumfjöllun um ásakanirnar sem koma frá konum sem voru á táningsaldri eða um tvítugt og voru að sækjast eftir vinnu sem fyrirsætur hjá Sullivan.

Á þeim tíma var Sullivan umsvifamikill í blaðaútgáfum á Bretlandseyjum og í klámiðnaðinum. Hann átti dagblöðin Daily Sport og Sunday Sport eftir að hafa efnast á því að opna kynlífsverslanir og gefa út klámblöð og síðar myndir.
Sullivan er sakaður um kynferðislega misnotkun og óviðunandi hegðun, þar á meðal er hann sagður hafa sett þrýsing á konurnar á fundum til að hafa við sig kynlíf. Hann bauðst til að koma ferli þeirra lengra ef þær svæfu hjá honum eða veittu honum munnmök.
Ein af konunum sem hafa stigið fram segir að hún hafi séð sig knúna til að sofa hjá Sullivan, hann hafi lofað sér því að hún yrði regluleg fyrirsæta á síðum blaða hans ef hún myndi stunda með honum kynlíf.
Þá segir BBC að Sullivan hafi viðurkennt það að hafa borgað fyrir vændisþjónustu frá stelpu sem hann telur að hafi verið sextán eða sautján ára þegar hann var sjálfur 40 ára.
Nánar má lesa um þetta mál á fréttavef BBC.