Fotbolti.net
08.07.06 - 16:15
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Mutu til Fiorentina (Staðfest)

Adrian Mutu

Adrian Mutu

Canon

Mynd: Getty Images

Fiorentina gengu í dag frá kaupunum á sóknarmanninum Adrian Mutu, varnarmanninum Alessandro Potenza og miðjumanninum Michele Pazienza.
Umræður höfðu verið í gangi í nokkrar vikur á Ítalíu að Mutu hefði áhuga að ganga til liðs við Flórensarliðið og myndi þá hugsanlega koma í skiptum fyrir hinn búlgaríska Valeri Bojinov.

Hjá Fiorentina hittir Mutu fyrir þjálfarann Cesare Prandelli sem átti stóran þátt í því þegar þessi snjalli Rúmeni sló í gegn með Parma tímabilið 2002-03. Hann var svð svo síðar seldur til Chelsea.

Þá hafa þeir fjólubláu einnig náð samkomulagi við Inter Milan að fá varnarmanninn Alessandro Potenza en hann var á síðasta tímabili á láni hjá spænska liðinu Real Mallorca.

Að lokum gengu þeir svo einnig miðjumanninn Michele Pazienza á eins árs löngu láni frá Udinese með möguleika á kaupum eftir tímabilið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.