Fotbolti.net
08.07.08 - 14:26
Hörður Snævar Jónsson

Gunnar Guðmundsson rekinn frá HK (Staðfest)

Gunnar Guðmundsson rekinn frá HK (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

HK hefur rekið Gunnar Guðmundsson en þetta kemur fram á vefsíðu félagsins.
Gunnar er fyrsti þjálfarinn sem fær að fjúka í Landsbankadeild karla en gengi HK hefur verið arfa dapurt í sumar.

HK er í neðsta sæti deildarinnar með fimm stig eftir tíu leiki en liðið fékk stóran skell í gær þegar liðið tapaði 1-6 fyrir Fjölni á heimavelli.

Gunnar sjálfur vildi ekki hætta með liðið og taldi sig geta unnið úr þeim vanda sem er í herbúðum HK.

Gunnar hafði stjórnað í fimm ár en hann tók við liðinu í október árið 2003. Hann var fyrsti maðurinn sem kom HK í efstu deild en liðið rétt hélt sér í deildinni síðasta sumar.


Af heimasíðu HK
Gunnar Guðmundsson hefur látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá HK frá og með deginum í dag, eftir að hafa stýrt liðinu í tæp fimm ár, eða frá 1. október 2003.

Þetta var ákvörðun meistaraflokksráðs knattspyrnudeildar HK í kjölfarið á slæmu gengi liðsins í Landsbankadeild karla í sumar. Gunnar var sjálfur tilbúinn til að halda áfram störfum og glíma við vandann, enda keppnismaður með mikinn metnað, en tók þessari niðurstöðu af sömu fagmennsku og hefur einkennt öll hans störf fyrir félagið á þessum fimm árum.

F.h. meistaraflokksráðs karla
Pétur Arason, formaður

F.h. knattspyrnudeildar
Torfi Sverrisson, formaður

Heimild: Heimasíða HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.