08.07.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Timothee Atouba til liðs við Ajax (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ajax hefur fengið varnarmanninn Timothee Atouba til liðs við sig frá Hamburg.
Atouba er vinstri bakvörður frá Kamerún en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við hollenska félagið.
Samningur Atouba við Hamburg var runninn út og því gengur hann frítt í raðir Ajax.
Martin Jol, þjálfari Ajax, þekkir Atouba vel þar sem að þeir voru á sama tíma hjá Hamburg.
Atouba komst í fréttirnar árið 2006 þegar að hann sýndi stuðningsmönnum Hamburg fingurinn eftir að hann hafði verið tekinn af leikvelli í leik í Meistaradeildinni.

Heimild: Sky