Fotbolti.net
08.07.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Christian Benitez til Birmingham (Staðfest)

Christian Benitez til Birmingham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Birmingham hefur keypt framherjann Christian Benitez frá Santos Laguna í Mexíkó.
Kaupverðið gæti orðið allt að níu milljónir punda en félögin komust í samkomulagi í síðasta máunði.

Hinn 23 ára gamli Benitez hefur átt við hnémeiðsli að stríða og því gekk læknisskoðunin treglega fyrir sig en nú er búið að ganga frá öllum lausum endum.

,,Þetta er rétti tíminn minn til að gera þessi skipti,\" sagði Benitez eftir að hafa gengið frá samningum í gær.

Birmingham er núna að undirbúa sig undir baráttuna í ensku úrvalsdeildinni en miðjumaðurinn Lee Bowyer mun væntanlega koma frítt til félagsins frá West Ham á næstu dögum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.