08.07.09 - 07:19
Magnús Már Einarsson
Jo til Everton á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester City hefur staðfest að framherjinn Jo er aftur genginn í raðir Everton á láni,.
Jo, sem er 22 ára, fór til Everton á láni í janúar og skoraði fimm mörk í tólf leikjum fyrir liðið á síðari hluta tímabilsins.
David Moyes, stjóri Everton, sagði eftir tímabilið að félagið hefði ekki efni á að kaupa leikmanninn en núna hefur aftur náðst samkomulag um lánssamning.
City keypti Jo á 18 milljónir punda frá CSKA Moskvu fyrir ári síðan en þessi brasilíski leikmaður náði ekki að festa sig í sessi í Manchester.
Jo er núna farinn til Skotlands þar sem hann mun vera með Everton í æfingabúðum næstu dagana.

Heimild: Sky