08.07.09 - 10:08
Magnús Már Einarsson
Lee Bowyer til Birmingham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Birmingham hefur fengið miðjumanninn Lee Bowyer á frjálsri sölu frá West Ham.
Bowyer, sem er 32 ára, var í láni hjá Birmingham undir lok síðasta tímabils og hjálpaði liðinu að komast upp í ensku úrvalsdeildina.
Bowyer lék áður með Charlton, Leeds og Newcastle en Birmingham hefur núna klófest leikmanninn.
Birmingham hefur alls fengið sjö nýja leikmenn í sumar en í gær kom framherjinn Christian Benitez til félagsins á níu milljónir punda.

Heimild: Heimasíða Birmingham