Fotbolti.net
08.07.09 - 13:33
Magnús Már Einarsson

Gabriel Obertan til Manchester United (Staðfest)

Gabriel Obertan til Manchester United (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur keypt kantmanninn Gabriel Obertan frá Bordauex.
Þessi tvítugi leikmaður hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Englandsmeistaranna en hann er búinn að standast læknisskoðun hjá félaginu.

Obertan var fyrr í sumar orðaður við Arsenal, Inter og AC Milan en Manchester United hafði vinninginn í baráttunni um leikmanninn.

Á síðustu leiktíð var Obertan í láni hjá Lorient þar sem hann skoraði eitt mark í fimmtán leikjum.

Obertan er þriðji leikmaðurinn sem Manchester United fær í sumar en áður höfðu Antonio Valencia og Michael Owen gengið í raðir félagsins.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.