08.07.09 - 17:37
Magnús Már Einarsson
Guðmundur Reynir Gunnarsson í KR (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
KR hefur fengið Guðmund Reyni Gunnarsson á láni frá GAIS út tímabilið en þetta kemur fram á heimasíðu sænska félagsins.
Guðmundur Reynir verður löglegur með KR þegar að félagaskiptaglugginn opnar 15.júlí næstomandi og því ætti hann að geta leikið með liðinu þegar það mætir Larissa frá Grikklandi í Evrópudeildinni þann 16.júlí.
Guðmundur Reynir er tvítugur bakvörður og kantmaður en hann gekk í raðir GAIS síðastliðið haust.
Hann hefur fengið fá tækifæri með liðinu það sem af er tímabils og einungis tvívegis verið í byrjunarliðinu í sænsku úrvalsdeildinni.
Guðmundur Reynir er uppalinn hjá KR en hann lék með meistaraflokki félagsins í þrjú ár áður en GAIS keypti hann síðastliðið haust.
Í fyrrasumar skoraði Guðmundur Reynir eitt mark í tuttugu leikjum með KR-ingum.

Heimild: Heimasíða GAIS