Fotbolti.net
08.07.11 - 16:10
Magnús Már Einarsson

Aron Einar Gunnarsson til Cardiff (Staðfest)

Aron Einar Gunnarsson til Cardiff (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Aron Einar Gunnarsson skrifaði nú rétt í þessu undir þriggja ára samning við Cardiff City en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net.
Aron kemur til Cardiff frá Coventry þar sem hann hefur leikið frá því árið 2008. Samningur Arons við Coventry rann út á dögunum og hann hefur ákveðið að leita á önnur mið.

Aron, sem er 22 ára, hefur verið í sumarfríi í Dubai undanfarnar tvær vikur en hann kom til Wales í gær þar sem hann fór í læknisskoðun og skrifaði undir í dag.

,,Ég komst að þeirri niðurstöðu eftir góða umhugsun á sundlaugarbakkanum að þetta væri besti kosturinn fótboltalega séð. Ég held að ég eigi eftir að bæta mig sem leikmaður og öðlast mikla reynslu þarna,\" sagði Aron við Fótbolta.net í gær.

Cardiff hefur verið í toppbaráttunni í ensku Championship deildinni undanfarin ár. Í vor tapaði liðið gegn Reading í undanúrslitum í umspili um sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Sjá einnig:
Aron Einar Gunnarsson: Maður þarf að taka þetta í þrepum
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.