Fotbolti.net
08.08.11 - 18:14
Magnús Már Einarsson

Tamir Cohen til Maccabi Haifa (Staðfest)

Tamir Cohen til Maccabi Haifa (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Maccabi Haifa frá Ísrael hefur samið við miðjumanninn Tamir Cohen en hann kemur til félagsins frá Bolton.

Þessi 27 ára gamli leikmaður fékk ekki nýjan samning hjá Bolton og því yfirgaf hann herbúðir félagsins á dögunum.
Cohen mun núna reyna að hjálpa Maccabi Haifa að hafa betur gegn Racing Genk í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Cohen er sonur Avi Cohen fyrrum leikmanns Liverpool en hann lést í umferðarslysi í Tel Aviv á síðasta ári.

Í vor skoraði Tamir Cohen sigurmark fyrir Bolton gegn Arsenal og fagnaði því með því að minnast föður síns.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.