08.08.11 - 19:28
Hafliði Breiðfjörð
Alex Oxlade-Chamberlain til Arsenal (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Arsenal tilkynnti á vef sínum nú í kvöld að hinn 17 ára gamli Alex Oxlade-Chamberlain sé genginn í raðir félagsins frá Southampton.
Talið er að kaupverðið sem var ekki gefið upp sé 12 milljónir punda fyrirfram og svo 3 milljónir punda ef ákveðnum áföngum er náð.
Leikmaðurinnn á sæti í U21 árs landslið Englands og skoraði 10 mörk í 41 leik með Southampton á síðustu leiktíð þegar liðið komst upp úr 1. deildinni sem er þriðja efst deild þar í landi.
Hann er fæddur 15. ágúst 1993 og hóf meistaraflokksferil sinn 16 ára gamall og 199 daga í mars í fyrra. Þá skoraði hann í sínum fyrsta leik í byrjunarliði í 2-0 sigri á Bournemouth 10. ágúst síðastliðinn.°
Hann hefur spilað 44 leiki með meistaraflokki Southampton og var í liði ársins í 1. deildinni á síðustu leiktíð.
Sothampton hefur sagt söluna á honum einn stærsta samning í sögu Championship deildarinnar en áður var Theo Walcott dýrasti leikmaður félagsins þegar Arsenal keypti hann á 12 milljónir punda árið 2006.
Hann er þriðju kaup Arsenal í sumar, áður kom Carl Jenkinson frá Charlton í 1. deildinni og framherjinn Gervinho frá Lille.

Heimild: BBC