08.10.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Sigurður Donys í Hött (Staðfest)

Mynd: Höttur

Mynd: Höttur
Höttur hefur fengið Sigurð Donys Sigurðsson til liðs við sig frá Einherja á Vopnafirði en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Sigurður Donys er 23 ára gamall miðju og sóknarmaður en á sínum yngri árum var hann undir smásjá erlendra félaga.
Í sumar skoraði Sigurður fjórtán mörk í fimmtán leikjum með Einherja í þriðju deildinni en hann hefur einnig leikið með Þór, Huginn, Reyni og Skallagrími hér á landi.
Þá hefur Höttur gert samning við nokkra unga leikmenn sem eru á aldrinum 16-19 ára en þeir hafa flestir fengið smjörþefinn af því að leika með meistaraflokki.
Þetta eru Brynjar Árnason, Garðar Már Grétarsson, Ingvi Þór Georgsson, Jóhann Valur Klausen, Kristófer Kristjánsson, Óttar Guðlaugsson og Öystein Magnús Gjerde sem sömdu til ársloka 2011 og Stefán Ingi Björnsson sem gerði samning til ársloka 2010.
Höttur er án þjálfara þessa dagana eftir að Njáll Eiðsson hætti en félagið reiknar með að ráða þjálfara um eða upp úr helgi.

Heimild: Heimasíða Hattar