Fotbolti.net
08.10.09 - 07:08
Hafliði Breiðfjörð

Sonja Björk orðin leikmaður KR (Staðfest)

Sonja Björk í lokaleik deildarinnar gegn Þór/KA.

Sonja Björk í lokaleik deildarinnar gegn Þór/KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Kvennaboltinn
Framherjinn Sonja Björk Jóhannsdóttir er gengin í raðir KR en þetta var staðfest á vef félagsins í gær.
Sonja Björk lék með KR í Pepsi-deildinni í sumar en þá var hún á lánssamningi frá Hetti á Egilsstöðum.

Hún var meðal bestu leikmanna KR í sumar og vakti athygli fyrir góða frammistöðu sína.

Hún lék í heildina 11 deildarleiki með liðinu í sumar og skoraði í þeim níu mörk.

Nú er ljóst að hún leikur áfram með liðinu en KR endaði í sjötta sæti deildarinnar í sumar sem var á pari við þær væntingar sem sérfræðingar gerðu til liðsins.

Heimild: KR.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.