Fotbolti.net
08.10.09 - 14:52
Hafliði Breiðfjörð

Elsa Petra Björnsdóttir í FH (Staðfest)

Elsa Petra Björnsdóttir.

Elsa Petra Björnsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Kvennalið FH heldur áfram að styrkja sig fyrir komandi sumar og nú hefur Elsa Petra Björnsdóttir ákveðið að ganga til liðs við FH frá Fylki.
Elsa Petra er tvítug og á að baki um 50 meistaraflokksleiki með Fylki og 2 U19 landsleiki frá síðasta ári.

Mikill hugur er í Hafnarfjarðarliðinu og verður spennandi að fylgjast með þeim næsta sumar.

Áður hafði félagið fengið Silju Þórðardóttur aftur til liðs við sig fyrir baráttuna í Pepsi-deildinni í sumar.

FH leikur óvænt í Pepsi-deildinni á næstu leiktíð eftir að hafa unnið ÍBV í umspili um sæti í deildinni. Félagið hafði áður tilkynnt að búið sé að framlengja samninga við Jón Þór Brandsson og Örnu Steinsen þjálfara.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.