Fotbolti.net
09.01.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Kigallon til Sheffield United (Staðfest)

Kilgallon í baráttu við Stephen Clemence.

Kilgallon í baráttu við Stephen Clemence.

Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield United hefur keypt varnarmanninn Matthew Kigallon frá Leeds United á 1,75 milljónir punda en kaupverðið getur hækkað í tvær milljónir punda.
Kigallon sem er 23 ára skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við Sheffield United en hann sagði við BBC Radio Sheffield: ,,Að spila í úrvalsdeildinni er það sem ég hef alltaf viljað gera."

Alls lék Kigallon 95 leiki með aðalliði Leeds þar sem hann er uppalinn en hann var einnig á láni hjá West Ham um tíma.

Neil Warnock stjóri Sheffield var í skýjunum eftir að hafa krækt í Kigallon enda fékk hann leikmanninn ódýrara en hann hefði gert síðastliðið sumar.

,,Við buðum meira í sumar, svo þetta eru góð viðskipti. Stundum ertu verðlaunaður fyrir að vera þolinmóður," sagði Warnock kátur.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.