09.01.07 - 10:36
Magnús Már Einarsson
Kristján Ari búinn að semja við HK (Staðfest)

Kristján Ari í leik gegn Fjarðabyggð síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Kristján Ari í leik gegn Fjarðabyggð síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Vinstri kantmaðurinn Kristján Ari Halldórsson gerði í gærkvöldi tveggja ára samning við nýliða HK í Landsbankadeildinni en hann kemur frá ÍR þar sem hann er uppalinn.
Kristján lék sinn fyrsta meistaraflokksleik sextán ára og hefur undanfarin þrjú ár verið fastamaður í liði ÍR í annarri deildinni. Síðastliðið sumar skoraði hann sex mörk í fjórtán leikjum í deildinni. Hann hefur einnig leikið þrjá leiki fyrir U-19 ára landslið Íslendinga og sömuleiðis þrjá leiki fyrir U-17 ára landsliðið.
Þá hefur Bjarki Már Sigvaldason gert nýjan tveggja ára samning við HK en þessi nítján ára gamli leikmaður hefur leikið lítið undanfarin tvö ár vegna meiðsla. Alls hefur hann skorað fjögur mörk í 38 meistaraflokksleikjum fyrir HK en hann lék mikið með liðinu í fyrstu deildinni árið 2004.

Heimild: Heimasíða HK