09.01.08 - 13:08
Hafliði Breiðfjörð
Robbie Savage til Derby (Staðfest)

Robbie Savage.

Mynd: Getty Images

Robbie Savage.

Mynd: Getty Images
Derby gengu í dag frá kaupum á Robbie Savage miðvallarleikmanni Blackburn Rovers. Kaupverðið á honum er talið vera um 1,5 milljón punda.
Félögin komust í gær að samkomulagi um kaupverð á Walesverjanum og í kjölfarið skrifaði hann svo undir tveggja og hálfs árs samning við Derby í dag.
Hann mun væntanlega leika sinn fyrsta leik fyrir liðið gegn Wigan um helgina.
Savage hafði misst byrjunarliðssæti sittt hjá Blackburn og sagði áður en hann gekk frá skiptunum að hann hlakkaði til að hjálpa Derby í fallbaráttunni.
Derby leika nú undir stjórn Paul Jewell. Liðið hefur aðeins fengið sjö stig úr 21 leik á tímabilinu en hafa verið duglegir á leikmannamarkaðnum í janúar.

Heimild: Sky