09.01.09 - 14:16
Hafliði Breiðfjörð
Jermain Defoe til Tottenham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Tottenham hefur loksins gengið frá kaupum á Jermain Defoe sem kemur frá Portsmouth á upphæð sem er talin vera 15 milljónir punda.
Félögin komust að samkomulagi um kaupverð á mánudaginn en svo tók sinn tíma að komast að samkomulagi um hvernig greiðslurnar kæmu og mögulegar aukagreiðslur og það var klárað í dag.
Félagaskiptin fóru svo í gegn í morgun svo Defoe verður kominn með leikheimild á sunnudag þegar Tottenham mætir Wigan í ensku úrvaldsdeildinni.
,,Þetta er þriðja félagið sem ég kaupi hann til. Ég veit hversu mikill toppleikmaður hann er,\" sagði Harry Redknapp stjóri Tottenham í dag en hann hafði keypt Defoe til Portsmouth fyrir ári síðan frá Tottenham.
,,Hann hefur sannað sig sem markaskorarai og ég er ánægður með að hafa hann hérna. Ég er viss um að stuðningsmennina hlakkar til að sjá hann aftur í treyju Spurs.\"
Defoe gerði fimm ára samning við Tottenham.

Heimild: BBC