Fotbolti.net
09.01.09 - 17:12
Magnús Már Einarsson

Sebastien Puygrenier til Bolton (Staðfest)

Gary Megson stjóri Bolton.

Gary Megson stjóri Bolton.

Canon

Mynd: Getty Images

Bolton hefur fengið varnarmanninn Sebastien Puygrenier á láni út tímabilið frá rússneska félaginu Zenit St Pétursborg.
Þessi 26 ára gamli leikmaður á einungis eftir að fá leikheimild áður en félagaskiptin ganga í gegn.

Pygrenier er frá Frakklandi en hann gekk til liðs við Zenit síðastliðið sumar eftir að hafa leikið með Stade Rennais og Nancy í heimalandinu.

Gary Megson stjóri Bolton ætlar að styrkja leikmannahóp sinn í janúar og ekki er ólíklegt að fleiri leikmenn komi til félagsins í mánuðinum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.