09.01.12 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Fjóla Dröfn Friðriksdóttir í Þrótt (Staðfest)

Fjóla Dröfn fagnar bikarmeistaratitli með KR árið 2007.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjóla Dröfn fagnar bikarmeistaratitli með KR árið 2007.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjóla Dröfn Friðriksdóttir er gengin í raðir Þróttar að nýju frá Fylki og fær leikheimild með sínu nýja félagi 22. febrúar næstkomandi. Hún má þó leika með Þrótti á Reykjavíkurmótinu sem hefst fyrir það. Hjá Þrótti verður hún spilandi aðstoðarþjálfari Theódórs Sveinjónssonar þjálfara.
Fjóla Dröfn hafði heyrt frá nokkrum félögum en ákvað á endanum að fara aftur til Þróttar sem hún lék síðast með árið 2004 og árið þar á undan með sameiginlegu liði Þróttar og Hauka.
Hún er þrítug og hefur verið lengi að í boltanum. Hún lék lengi með KR eða í fimm ár frá 2005-2009 og svo í kjölfarið í tvö ár með Fylki. Hún á að baki tvo leiki fyrir A-landslið Íslands.
Samtals hefur hún leikið 170 leiki í deild og bikar og skorað í þeim 83 mörk.