09.01.12 - 19:21
Hafliði Breiðfjörð
Pétur Markan í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Pétur Georg Markan hefur gert tveggja ára samning við BÍ/Bolungarvík og leikur því áfram með liðinu í 1. deild karla næsta sumar.
Pétur hafði verið lánaður frá Víkingum til BÍ/Bolungarvíkur í lok júlí og nú er ljóst að hann verður áfram í herbúðum félagsins.

Pétur Georg hafði komið til Víkings frá Fjölni fyrir síðustu leiktíð og hafði leikið 8 leiki áður en hann var lánaður í BÍ/Bolungarvík. Þar spilaði hann sjö leiki í deild og bikar í sumar.
Hann hefur mikla reynslu og hefur leikið 168 leiki í deild og bikar hér á landi og hefur skorað í þeim 70 mörk.
Hann er þrítugur og hafði hafið knattspyrnuferil sinn með BÍ árið 2002 í 3. deildinni. Þaðan fór hann til Fjölnis árið 2005 og var þar í fjórar leiktíðir. Eftir það lék hann með Val, Fjölni aftur og Víking.
Jörundur Áki Sveinsson þjálfar lið BÍ/Bolungarvíkur en hann tók við starfinu af Guðjóni Þórðarsyni í haust.
Liðið verður nokkuð breytt frá síðustu leiktíð og ekki hefur verið staðfest að neinn af erlendu leikmönnunum frá síðustu leiktíð verði þar áfram.
Félagið hefur áður fengið Hauk Ólafsson, Hafstein Rúnar Helgason og Harald Hróðmarsson til liðs við sig í haust og danski varnarmaðurinn Dennis Nielsen mun verða á reynslu hjá þeim á næstu dögum.
BÍ/Bolungarvík endaði í 6. sæti 1.deildar karla síðasta sumar en þeir voru þá nýliðar í deildinni. Liðið komst þá í undanúrslit Valitor bikarsins eftir að hafa unnið þáverandi Íslandsmeistara Breiðabliks í 8 liða úrslitum. Í undanúrslitum töpuðu þeir fyrir KR sem vann að lokum keppnina.