09.02.06 - 08:07
Halldór Hallgrímsson Gröndal
Ómar Hákonar í Fjölni (Staðfest)

Sáttir: Ásmundur Arnarsson þjálfari Fjölnos, Ómar Hákonarson og Kristófer Sigurgeirsson aðstoðarþjálfari liðsins.

Mynd: Fjölnir

Sáttir: Ásmundur Arnarsson þjálfari Fjölnos, Ómar Hákonarson og Kristófer Sigurgeirsson aðstoðarþjálfari liðsins.

Mynd: Fjölnir
Kantmaðurinn Ómar Hákonarson sem hætti hjá Fram á dögunum, skrifaði undir eins árs samning við Fjölni í gærkvöldi en við greindum frá því í gær að hann væri á leið til Grafarvogsliðsins.
Ómar hefur getað leyst hinar ýmsu ástöður frammi á vellinum og lék hann tíu leiki í Landsbankadeildinni í sumar. Hann mun hinsvegar ekki byrja strax að æfa með Fjölni vegna anna í vinnu og er hann væntanlegur á æfingar eftir einn og hálfan til tvo mánuði.
Ómar mun eflaust reynast góð viðbót við lið Fjölnismanna en liðið endaði í 4. sæti í fyrstu deildinni á síðasta leiktímabili.
Ómar mun eflaust reynast góð viðbót við lið Fjölnismanna en liðið endaði í 4. sæti í fyrstu deildinni á síðasta leiktímabili.
