09.02.07 - 12:40
Magnús Már Einarsson
Alexander Steen til Fram (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Framarar hafa samið við sænska miðjumanninn Alexander Steen en hann var til reynslu hjá félaginu í síðastliðnum mánuði.
Alexander sem er 22 ára er uppalinn hjá Konga SK en hann lék síðast með Trelleborg þar sem hann var liðsfélagi Patrik Redo og Reynis Leóssonar sem munu einnig leika með Fram næsta sumar.
Alexander lék með Öster 2001-2003 og var hann hjá félaginu þegar að það tryggði sér sæti í sænsku Allsvenskunni. Hann fór síðan til Trelleborg en hann lék þrjá leiki með liðinu í næstefstu deildinni í Svíþjóð á síðustu leiktíð.

Heimild: Heimasíða Fram