Fotbolti.net
09.02.07 - 16:29
Hörður Snævar Jónsson

Ray Parlour til Hull (Staðfest)

Parlour í léttu gríni með Ian Wright.

Parlour í léttu gríni með Ian Wright.

Canon

Mynd: Getty Images

Hull City hefur fengið fyrrum leikmann Arsenal og Middlesbrough, Ray Parlour til liðs við sig. Parlour var leystur undan samningi sínum við Boro í seinasta mánuði eftir að hafa verið hjá félaginu í tvö og hálf ár.
Parlour sem er 33 ára gamall á að koma með reynslu í lið Hull en hann á að hjálpa félaginu við halda sæti sínu í ensku fyrstu deildinni þar sem liðið er við fallsvæðið.

Svo gæti farið að þessi fyrrum leikmaður enska landsliðsins muni leika með liðinu um helgina þegar liðið mætir Derby sem er á toppi deildarinnar.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.