09.02.09 - 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Anna Björk Kristjánsdóttir í Stjörnuna (Staðfest)

Stjarnan hefur fengið Önnu Björk Kristjánsdóttur til liðs við sig

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan hefur fengið Önnu Björk Kristjánsdóttur til liðs við sig

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan hefur fengið til liðs við sig hina 18 ára Önnu Björk Kristjánsdóttur en hún kemur úr röðum Knattspyrnufélags Reykjavíkur.
Anna Björk er sjötti leikmaður liðsins frá því að síðasta tímabili lauk en áður hafði Hrefna Huld Jóhannesdóttir komið frá KR, Lilja Íris Gunnarsdóttir frá Keflavík og þær Íris Ósk Valmundsdóttir, Helga Franklínsdóttir og Kristrún Kristjánsdóttir frá Fjölni.
Ljóst er að mikill metnaður er hjá félaginu fyrir komandi tímabil og markmiðin eru sett hátt.
Anna Björk lék allan leikinn gegn GRV í gær en hún hefur spilað með liðinu síðan Faxaflóamótið hófst. Hún hefur samið við félagið til þriggja ára.