Fotbolti.net
09.02.09 - 16:28
Alexander Freyr Tamimi

Luiz Felipe Scolari rekinn frá Chelsea (Staðfest)

Scolari er fokinn á brott frá Stamford Bridge eftir stutta dvöl

Scolari er fokinn á brott frá Stamford Bridge eftir stutta dvöl

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Chelsea hefur rift samningi sínum við Brasilíumanninn Luiz Felipe Scolari og er hann því ekki lengur stjóri liðsins. Eftir að hafa tekið við stjórastöðunni af Avram Grant í sumar og byrjað vel fór heldur betur að halla undan fæti hjá Scolari og hefur Chelsea ekki gengið sem skyldi undanfarið.
Markalaust jafntefli Chelsea gegn Hull virðist hafa fyllt mælin hjá Roman Abrahamovic og hefur félagið staðfest brottrekstur Brasilíumannsins.

„Luiz Felipe Scolari hefur verið vikið frá störfum sem stjóri Chelsea í dag (mánudag) og mun hann yfirgefa félagið nú þegar,“ sagði yfirlýsing á heimasíðu félagsins.

„Stjórn Chelsea vill þakka Scolari fyrir unnin störf sem stjóri liðsins. Felipe hefur gert marga jákvæða hluti hjá félaginu síðan hann kom og okkur finnst leiðinlegt að enda samstarf okkar svona fljótt.“

„Því miður voru úrslit og frammistaða liðsins ekki nægilega góð á þessum lykiltíma á tímabilinu. Til að halda áfram að berjast um þá titla sem við eigum ennþá möguleika á teljum við að þetta sé rétti valkosturinn.“

„Leitin að nýjum stjóra er nú þegar hafin og við vonumst til að ná í einhvern eins fljótt og hægt er.“

„Á meðan leitin stendur yfir mun aðstoðarstjórinn Ray Wilkins taka við liðinu tímabundið.“


Scolari er annar stjórinn í úrvalsdeildinni sem er látinn taka pokann sinn en Tony Adams var einnig vikið frá störfum fyrr í dag.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.