09.02.09 - 19:25
Magnús Már Einarsson
Gunnar Líndal Sigurðsson til Stryn (Staðfest)

Mynd: www.thorsport.is

Mynd: www.thorsport.is
Gunnar Líndal Sigurðsson, markvörður úr Þór, hefur gengið til liðs við norska 3.deildarliðið Stryn.
Gunnar er uppalinn Þórsari og steig sín fyrstu skref með meistaraflokki árið 2002 en þessi 24 ára gamli leikmaður lék á sínum tíma með yngri landsliðum Íslendinga.
Í fyrra lék Gunnar tvo leiki með Þór í fyrstu deildinni en árið áður var hann á mála hjá Fram þar sem hann lék einn leik sumarið 2007.
Gunnar er menntaður verkfræðingur og mun vinna samhliða boltanum í Noregi hjá fyrirtækinu Nordfjord Kjøt.
Pétur Heiðar Kristjánsson og Kristján Sigurólason gengu í haust til liðs við Stryn en þeir eru líkt og Gunnar uppaldir hjá Þór. Jóhann Sigurðsson þjálfar Stryn en hann hafði áður leikið með liðinu.