Fotbolti.net
09.02.12 - 13:00
Magnús Már Einarsson

George Elokobi til Nottingham Forest (Staðfest)

George Elokobi til Nottingham Forest (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nottingham Forest hefur fengið varnartröllið George Elokobi á láni frá Wolves út þetta tímabil.

Þessi 26 ára gamli Kamerúni hefur komið við sögu í tólf leikjum hjá Wolves á tímabilinu en hann hefur setið löngum stundum á varamannabekk liðsins.
Elokobi var meira í liðinu hjá Wolves í fyrra en þá skoraði hann þrjú mörk í 32 leikjum.

Hann mun nú reyna að hjálpa Nottingham Forest sem er í næstneðsta sæti í ensku Championship deildinni, fimm stigum frá öruggu sæti.

Elokobi gæti leikið sinn fyrsta leik í treyju Nottingham Forest á laugardag þegar liðið mætir Watford.

Heimild: Heimasíða Nottingham Forest

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.