Tonali ofarlega á lista Man Utd - Chiesa gæti farið til Ítalíu - Tottenham ætlar ekki að kaupa Kolo Muani
   mán 09. febrúar 2026 19:20
Brynjar Ingi Erluson
Atli Hrafn aftur í HK (Staðfest) - „Gæða leikmaður með góða reynslu úr efstu deild“
Mynd: HK
Atli Hrafn Andrason er mættur aftur í HK frá KR en hann semur við félagið út 2027.

Atli, sem er uppalinn KR-ingur, spilaði með HK tímabilin 2023 og 2024.

Áður lék hann með Víkingi, Breiðablik og ÍBV, en hann á 207 leiki og 21 mark í meistaraflokksleikjum sínum samkvæmt heimasíðu KSÍ.

Atli er kraftmikill sóknarmaður sem spilaði yfir 60 leiki með HK, en hann fór aftur til KR fyrir síðasta tímabil þar sem hann lék átta deildarleiki og gerði eitt mark.

HK-ingar fagna því að hann sé kominn aftur í raðir félagsins, en hann samdi út 2027.

„Atli er gæðaleikmaður með góða reynslu úr efstu deild. Hans styrkleikar og karakter smellpassar inn í það sem við erum að gera og hvernig við viljum verða,“ sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfari meistaraflokks karla hjá HK um komu Atla.


Athugasemdir
banner
banner
banner