Tonali ofarlega á lista Man Utd - Chiesa gæti farið til Ítalíu - Tottenham ætlar ekki að kaupa Kolo Muani
banner
   mán 09. febrúar 2026 21:13
Brynjar Ingi Erluson
Grealish staðfestir fregnirnar - „Gjörsamlega í rusli yfir þessu“
Mynd: EPA
Enski vængmaðurinn Jack Grealish hefur staðfest að hann verði ekki meira með á þessu tímabili eftir að hafa fótbrotnað.

Grealish kom til Everton frá Manchester City síðasta sumar og var fljótur að koma sér í mjúkinn hjá stuðningsmönnum Everton.

Hann kom að 8 mörkum í 20 leikjum með Everton áður en hann fótbrotnaði og gekkst hann undir aðgerð í dag.

Þar staðfesti hann að hann verði ekki meira með á þessu tímabili, en hann mun líklega snúa aftur til Manchester City í sumar þar sem hann er aðeins á láni. Everton getur þó gert skiptin varanleg fyrir 50 milljónir punda en það er óvíst hvort Everton muni virkja ákvæðið.

„Vildi ekki ljúka tímabilinu með þessum hætti, en svona er fótboltinn. Ég er eyðilagður yfir þessu. Aðgerðinni er lokið og núna set ég alla einbeitingu á að koma mér aftur á völlinn. Ég veit fyrir víst að ég mun mæta í betra formi, sterkari og betri en áður.“

„Stuðningurinn sem ég hef fengið síðan ég kom til þessa ótrúlega félags hefur verið ómetanlegur. Starfsfólkið, liðsfélagarnir og sérstaklega stuðningsmennirnir hafa verið mér ótrúlegir og ég elska að spila fyrir félagið. Ég mun styðja strákana alla leið og gera allt sem ég get til að snúa á völlinn sem allra fyrst. Þessi ást sem ég hef fengið frá ykkur er svo þýðingarmikil fyrir mig og bara enn og aftur takk fyrir allt,“
sagði Grealish.
Athugasemdir
banner
banner
banner