Rodri, Leon Goretzka, Dusan Vlahovic, Sandro Tonali og Marcus Rashford eru meðal þeirra sem koma við sögu
   mán 09. febrúar 2026 08:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Henríetta heim í HK (Staðfest)
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Henríetta Ágústsdóttir hefur skrifað undir samning við HK sem gildir til ársins 2028.

Henríetta, sem uppalin er hjá HK, er mætt aftur til félagsins frá Stjörnunni þar sem hún hefur verið síðustu tvö tímabil.

Hún er tvítugur miðjumaður sem lék á láni hjá Þór/KA á síðasta tímabili. Hún skoraði tvö mörk í ellefu leikjum með liðinu.

Henríetta á að baki tólf leiki fyrir yngri landsliðin og hefur skorað í þeim eitt mark.

„Við erum virkilega ánægð með að fá Henríettu aftur til liðs við okkur í HK, markmiðin eru skýr og við hlökkum til komandi tímabils,” segir Kristín Jónsdóttir, varaformaður fótboltadeildar HK, í tilkynningu félagsins.

HK endaði í 3. sæti Lengjudeildarinnar í fyrra, liðið var einungis einu stigi frá sæti í Bestu deildinni. Pétur Rögnvaldsson er þjálfari liðsins.




Athugasemdir
banner