Haukar tilkynntu í gær að Jón Gísli Stefánsson væri búinn að skrifa undir samning við félagið sem gildir til næstu þriggja ára. Hann kemur til Hauka frá Kormáki/Hvöt.
Kantmaðurinn er uppalinn hjá Kormáki, fæddur árið 2004 og hefur einnig spilað með Tindastóli á sínum ferli. Hann fór árið 2022 á reynslu til sænska félagsins Örgryte.
Kantmaðurinn er uppalinn hjá Kormáki, fæddur árið 2004 og hefur einnig spilað með Tindastóli á sínum ferli. Hann fór árið 2022 á reynslu til sænska félagsins Örgryte.
Haukar greindu þá frá því í gær að sóknarmaðurinn Theodór Ernir Geirsson væri búinn að skrifa undir sinn fyrsta samning við félagið.
Framherjinn er fæddur árið 2007 og lék sína fyrstu deildarleiki með Haukum árið 2024. Hann spilaði þá tvo leiki og skoraði eitt mark í 2. deildinni, en hann lék aðeins eitt leik síðasta sumar.
Haukar eru stórhuga fyrir komandi leiktíð. Guðjón Pétur Lýðsson var ráðinn þjálfari liðsins og þá verða þeir Óskar Örn Hauksson og Pablo Punyed aðstoðarmenn hans.
Haukar höfnuðu í 7. sæti deildarinnar með 31 stig á síðustu leiktíð.
Athugasemdir




